Ég heiti Þórdís María Róbertsdóttir og ég kom í heiminn fimmtudaginn 25.janúar kl.19:55, stundvís eins og pabbi minn!

Um litlu fjölskylduna
ég kom í heiminn fimmtudaginn 25.jan nákvæmlega á settum degi 40.viku. Mamma mín sem er algjör hetja heitir Marjorie Perez Cajes(87) eða Mia eins og allir kalla hana og svo á ég SuperPabba sem heitir Róbert Leifsson(78) með kalda þvottapokann ;) sem gerði mömmu að algjöri hetju, ef það væri ekki fyrir SuperPabba með kalda þvottapokan þá væri mamma bara búin! Ég fæddist með svart hár og grá augu og mins var alveg 52cm og alveg 14merkur eða 3.520gr. :D

Mamma var svo duglega að gera allt þetta sjálf enga deyfingu eða neitt bara gasgrímu sem hún öskraði í.
En svo fór mins að vera þreytt á lokasprettinu og það þurfti að koma með sogklukkuna eða
eins og pabbi kallar það litla drullusokkurinn og ég kom í heiminn kl.19:55
Við superhetjurnar búum í breiðholtinu

Stjörnumerkið mitt
Er Vantsberinn
20.janúar – 18.febrúar

Vantsberabarnið fer fljótt sínar eigin leiðir hvort sem það er í fataburði, hugsun eða
Hegðun. Það er uppfinningasamt, frumlegt og fullorðinslegt og lærir snemma að tjá
Sig og skila heim fullorðinna. Litli vatnsberinn vill sjá um sig sjálfur og fara sínu
Fram og er oft á tíðum mjög dramatískur. Ef honum leiðist gæti hann átt það til að
Stofna til vandræða bara til að fá spennu og drama inn í líf sitt. Best uppeldisaðferðin
Er fólgin í umræðu og skynsamlegum fortölum. Vantsberinn er þrjóskur og lítið
Þýðir að skipa honum fyrir eða beygja hann til hlýðni með skömmum. Best er að
Koma fram við barnið sem vitsmunalegan jafningja því vantsberinn er hugarorkumerki
Og því skipa umræður og skynsamlegar fortölur fyrsta sæti. Vantsberabörnin
Geta sýnt ást og væntumþykju á frekar ópersónulega hátt. Þau eru yfirleitt vingjarnleg
Og yfirveguð en ekki mjög tilfinningasöm og oft illa við mikið kjass.

 

 

 
PabbaKoss

MömmuKoss


Munurinn á mömmukoss og pabbakoss er að mamma er með storar varir og pabbi er með litla varir sem passa við mínar ;)

Amma Dísa og Afi Leifur eiga heima í Hafnarfirði. Amma Dísa dó í sumar(2010) og við söknum hennar svakalega mikið. 
Svo á ég lika ömmu og afa á Hellissandi, Barðarásinu. Þau eru reyndar flutt til Noregs núna en vonandi koma þau til baka :)